Actavis hefur staðfest að fyrirtækið hafi áhuga á samheitalyfjaeiningu þýska lyfja- og efnafyrirtækisins Merck KGaA, að því er kom fram á heimasíðu Financial Times í þýskalandi í gær.

Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir að ef verði af yfirtökunni verði Actavis þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi, segir í fréttinni.

Heildarsala einingarinnar nam 1,8 milljörðum (162 milljarðar króna) evra árið 2005.