Stefnt er að þvi að Actavis haldi áfram að vaxa á mörkuðum í Asíu, Suður-Ameríku og í Austur-Evrópu. Þetta sagði Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, á Fjármálaþingi Íslandsbanka í dag.

Actavis sameinaðist Watson Pharamaceuticals í fyrra og fyrir nokkrum dögum tilkynnti fyrirtækið kaup a írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott.

VB Sjónvarp ræddi við Guðbjörgu Eddu.