Lyfjaframleiðandinn Actavis hefur ákveðið að stækka verksmiðju sína í Hafnarfirði. Um 50 ný störf verða til við stækkunina, samkvæmt fréttatilkynningu sem Actavis sendi frá sér í morgun. Framleiðsugetan í verksmiðjunni eykst um 50% við stækkunina. Gert er ráð fyrir að stækkuð verksmiðja verði fullbúin um næstu áramót.

Í fréttatilkynningu frá Actavis segir að afkastageta verksmiðjunnar muni aukast úr einum milljarði taflna á ári í einn og hálfan milljarð taflna.

Í tilkynningu frá Actavis segir ennfremur:

"Actavis hefur ákveðið að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði. Í kjölfarið verða til meira en 50 ný störf hjá fyrirtækinu og framleiðslugetan á Íslandi eykst um 50%. Framkvæmdir hefjast fljótlega og er áætlað að framleiðsla í nýja hlutanum fari af stað um næstu áramót.

Framleiðslan á Íslandi gegnir mjög mikilvægu hlutverki við markaðssetningu á nýjum lyfjum Actavis samstæðunnar. Afkastageta verksmiðjunnar eykst við stækkunina úr u.þ.b. einum milljarði taflna á ári, í um einn og hálfan, eftir samsetningu framleiðslunnar hverju sinni. Verksmiðjan hefur verið keyrð á hámarksafköstum frá miðju síðasta ári. Með stækkuninni verður rekstur verksmiðjunnar enn hagkvæmari en hann er í dag og samkeppnishæfni hennar eykst, en um 95% af framleiðslunni eru seld erlendis.

Gert ráð fyrir um 50 nýjum störfum eftir stækkunina í árslok 2010. Um 75% þeirra eru í framleiðslu, en einnig ýmis tengd störf. Auk þessa er nú þegar verið að fjölga starfsfólki til að anna þeirri eftirspurn sem er framundan á árinu, en Actavis auglýsti eftir fólki til starfa um helgina.

Lyfjaverksmiðjur Actavis eru alls 18 talsins í 13 löndum. Ákvörðunin um að stækka íslensku verksmiðjuna til að bregðast við aukinni eftirspurn ræðst m.a. af því að ekki hlýst kostnaður eða tafir af því að flytja framleiðslu lyfja annað. Slíkt getur tekið um tvö ár og kallar á viðamiklar skráningarbreytingar í þeim löndum þar sem lyfin eru seld.

Áætlað að hefja framleiðslu í nýja hlutanum um næstu áramót og er lögð mikil áhersla á  að hraða framkvæmdum eins og mögulegt er. Ekki er gert ráð fyrir töfum á annarri starfsemi meðan á byggingarframkvæmdum stendur.

Lyfjaverksmiðja Actavis  á Íslandi er með ISO 14001 umhverfisvottun, en Actavis rekur alls 11 verksmiðjur sem hafa slíka vottun. Félagið hefur lagt mikla áherslu á að vera í forystu í umhverfis- og öryggismálum og er verksmiðjan á Íslandi einnig með OHSAS 18001 vottun fyrir heilsu- og öryggisstjórnun. Verksmiðjan á Íslandi framleiðir mörg af nýjustu samheitalyfjunum, og er raunar sérhæfð í því að setja ný lyf á markað. Starfsmenn Actavis hf á Íslandi eru tæplega 300 í dag, flestir á framleiðslu- og gæðasviðum. Hjá Actavis Group (að Actavis hf meðtöldu) eru starfsmenn á Íslandi um 570, en rúmlega 10,000 alls í 40 löndum.

Actavis er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Höfuðstöðvar félagsins eru á Íslandi en fyrirtækið rekur auk þess þróunarsetur og verksmiðjur í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu."