Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var í dag, var samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2014. Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga fjármála- og efnahagsráðherra um kjör aðalmanna og varamanna í stjórn Landsvirkjunar. Kemur þetta fram í tilkynningu.

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Páley Borgþórsdóttir, Teitur Björn Einarsson, Ásta Björg Pálmadóttir, Skúli Helgason og Steinþór Heiðarsson.

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Jón Björn Hákonarson varaformaður.