Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra hefur í dag skipað Aðalstein Leifsson framkvæmdastjóra hjá EFTA sem ríkissáttasemjara frá og með 1.apríl nk. Helga Jónsdóttir settur ríkissáttasemjari mun gegna störfum fram til þess tíma.

Í fréttatilkynningu félags- og barnamálaráðherra kemur fram að af þremur umsækjendum uppfylli Aðalsteinn Leifsson best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem skipaður verður í embættið og jafnframt að hann sé óvilhallur í málum launafólks og atvinnurekendur eftir samráð við aðila vinnumarkaðarins, enda hafi hann samhliða öðrum störfum, starfað sem aðstoðarríkissáttasemjari frá því í byrjun árs 2019.

Aðalsteinn lauk MBA námi frá Edinburgh Business School / Herriot Watt University í október 2004. Auk þess hefur hann lokið MSc námi frá London School of Economics (LSE). Þá stundaði hann doktorsnám í samningatækni hjá Greneoble Ecole de Management samhliða vinnu á árunum 2016-2018.

Frá því í janúar 2014 hefur Aðalsteinn leitt daglegan rekstur EFTA sem hefur starfstöðvar í Genf, Brussel og Luxemburg og tæplega eitt hundrað starfsmenn en í því starfi hefur meðal annars reynt á verkstjórn og forystuhæfileika Aðalsteins, oft og tíðum við krefjandi aðstæður. Einnig hefur hann leitt skrifstofu aðalframkvæmdastjóra EFTA.

Samhliða starfi sínu hjá EFTA hefur Aðalsteinn starfað sem lektor við Háskólann í Reykjavík þar sem hann hefur meðal annars kennt samningatækni og lausn deilumála í MBA námi og í meistaranámi innan hinna ýmsu deilda skólans. Í framangreindri kennslu, við ráðgjöf og í nýlegri bók sinni sem og samningaviðræðum almennt hefur Aðalsteinn lagt áherslu á traust, heiðarleika, opin samskipti og gagnkvæman ávinning.

Þá hefur Aðalsteinn, eins og áður er nefnt, starfað sem aðstoðarríkissáttasemjari frá því í byrjun árs 2019 vegna samninga á almennum vinnumarkaði og hefur hann veitt embættinu liðsinni og verið til ráðgjafar auk þess að sitja fundi með samningsaðilum þar sem meðal annars hefur reynt á hæfni hans í mannlegum samskiptum.

Aðalsteinn hefur því víðtæka þekkingu og reynslu á samningamálum en auk fræðilegrar þekkingar hefur hann reynslu af þátttöku í samningaviðræðum, kennslu í samningatækni, ráðgjöf við samningsaðila og aðstoð við deiluaðila við að bæta samskipti en allt er þetta reynsla og þekking sem talin er mikilvæg þegar kemur að því að skipa í embætti ríkissáttasemjara að því er segir í tilkynningunni.

Í ljósi framangreinds er það mat félags- og barnamálaráðherra að Aðalsteinn sé best til þess fallin, af þeim umsækjendum sem framangreind nefnd taldi hæfasta til að gegna embætti ríkissáttasemjara, til að annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar.