Aðalsteinn Steinþórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Lyfjavers, hefur sagt starfi sínu lausu að eigin ósk. Við starfi hans tekur nafni hans, Aðalsteinn Ingvason.

Aðalsteinn stofnaði Lyfjaver ásamt bróður sínum og mági árið 1998 og var meðeigandi þess allt til ársins 2010.  Aðalsteinn var lengst af stjórnarformaður en framkvæmdastjóri frá árinu 2008.

Haft er eftir Aðalsteini í tilkynningu að ákvörðunin hafi verið tekin að vel athuguðu máli.

„Ég hef starfað fyrir Lyfjaver allt frá stofnun félagsins og finnst núna rétti tíminn til þess að breyta til og takast á við ný verkefni.  Framtíðin er björt hjá Lyfjaveri, félagið er með frábært starfsfólk og tausta og góða viðskiptavini. Öllum þessum aðilum þakka ég frábært samstarf allan þennan tíma.“

Aðalsteinn Ingvason hefur verið fjármálastjóri Lyfjavers og Invent Farma á Íslandi síðan 2008. Aðalsteinn er 42 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Hjá Lyfjaveri starfa 40 manns og er fyrirtækið í eigu Invent Farma.