Aðalsteinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í stöðu viðskiptaþróunarstjóra hjá Póstinum og hefur þegar tekið til starfa. Samkvæmt tilkynningu um málið eru helstu hlutverk Aðalsteins að stýra umbótaverkefnum, tengja saman vöruþróun og vörusamsetningu við tæknibreytingar og framkvæmd  sem og að greina tækifæri til umbóta þvert á svið.

Aðalsteinn starfaði síðast hjá Póstdreifingu, fyrst sem rekstrarstjóri rekstrarsviðs og síðan sem framkvæmdastjóri. Áður starfaði hann meðal annars hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem sérfræðingur í innkaupum og rekstrarþjónustu, hjá Norðurál Grundartanga sem sérfræðingur í samningum og hjá Húsasmiðjunni sem rekstarstjóri aðfangastýringar. Þá hefur Aðalsteinn starfað bæði hjá Eimskip og Samskip í ýmsum hlutverkum.

„Það er frábært að fá tækifæri til þess að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni hjá Póstinum. Fyrirtækið á heilmikið inni þegar kemur að tæknivæðingu í vinnslu og flokkun og verður mjög gaman að vera virkur þátttakandi í næstu skrefum. Ég sé fullt af tækifærum hjá okkur til að bæta ýmsa þætti út um allt fyrirtækið, þetta er stórt verkefni en það er svo mikill vilji til umbóta hjá Póstinum að ég er þess fullviss að við munum ná góðum árangri og gera Póstinn að skilvirkara fyrirtæki,“ er haft eftir Aðalsteini.