Jarðir á Íslandi að fullu í eigu útlendinga eru 28 talsins, eða 0,37% allra jarða og þá eiga útlendingar hluta í 73 jörðum, eða 1,33% allra jarða. Samtals eiga útlendingar því, að fullu eða hluta, 101 jörð. Kemur þetta fram í Fréttablaðinu . Lögbýli á Íslandi eru um 6.500 talsins.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur kynnt ríkisstjórninni frumvarp sem gerir það að kröfu að fólk utan hins Evrópska efnahagssvæðis (EES) þurfi að vera íslenskir ríkisborgarar til að kaupa land á Íslandi. Þá er reglugerð í undirbúningi sem kveður á um að borgarar innan EES-svæðisins geti aðeins keypt hér á landi með því skilyrði að einhver efnahagsstarfsemi fari fram á jörðunum.

Ögmundur segir að með þessu sé verið að koma í veg fyrir að útlendingar geti sankað að sér jörðum. "

Í Fréttablaðinu er rætt við Magnús Leópoldsson, fasteignasala, sem segir örfá tilvik koma upp árlega þar sem útlendingar kaupa jarðir. Langoftast séu það menn sem eru mjög tengdir Íslandi, hafa komið árum saman til veiða, svo dæmi sé nefnt. Ögmundur segir líka mikilvægt að taka á jarðasöfnun einstaklinga.

Þá segist Magnús ekki kannast við jarðasöfnun af hálfu Íslendinga. Helst hafi það verið fyrirtækið Lífsval, en Landsbankinn sé nú að selja jarðir þess.