Adela Lubina hefur verið ráðin sem lögfræðingur á lögfræðisviði hjá Nasdaq kauphöllinni á Íslandi og Nasdaq verðbréfamiðstöð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nasdaq á Íslandi.

Adela mun meðal annars sinna ráðgjöf og stuðningi við eftirlit Kauphallarinnar sem og við innleiðingu á MiFID II regluverkinu sem er ætlað að auka fjárfestavernd og gagnsæi í viðskiptum á markaði og stefnt er að verði innleitt á árinu. Þá mun Adela annast lögfræðiráðgjöf í tengslum við innleiðingu á nýjum vörum og þjónustu hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð.

Adela lauk BA prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og meistaraprófi frá sama skóla árið 2016. Þá hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Áður en Adela kom til starfa hjá Nasdaq starfaði hún sem lögfræðingur hjá Íslandsbanka.