Stöðugildum í velferðarráðuneytinu mun fækka um sjö vegna aðhaldsaðgerða í samræmi við 5% aðhaldskröfu fjárlaga. Þetta var kynnt á starfsmannafundi í dag. Þá mun stöðugildum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu einnig fækka um sjö.

Breytingarnar munu hafa áhrif á störf um 20 starfsmanna ráðuneytisins. Stöðugildum fækkar alls um sjö, að hluta til með lækkun á starfshlutfalli en einnig með uppsögnum starfsfólks. Rætt hefur verið við starfsfólk sem komið er með rétt til lífeyris um að flýta starfslokum.

Tímabundnar stöður verða ekki framlengdar og ekki verður ráðið í stöður fólks sem hættir nema það sé óhjákvæmilegt. Stefnt er að því að draga úr aðkeyptri sérfræðiþjónustu, sagt verður upp leigu á hluta af húsnæði ráðuneytisins, dregið úr kostnaði vegna utanlandsferða í tengslum við alþjóðlegt samstarf og útgjöld spöruð í öllum öðrum rekstrarþáttum eftir því sem nokkur kostur er.

Á vef ráðuneytisins segir að áætlað sé að aðgerðir ráðuneytisins til að mæta aðhaldskröfu ársins 2014 skili 55 milljónum króna á þessu ári.