Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, afhenti í dag Ingibjörgu Karlsdóttur, formanni ADHD samtakanna, andvirði 2.350.000 króna sem söfnuðust meðal farþega í vélum félagsins frá ágúst 2006 fram til ársloka 2007. Samtökunum voru afhentar 1.650.000 krónur í peningum og 700.000 króna flugmiðaúttekt frá Iceland Express sem samtökin geta nýtt við starfsemi sína. Við upphaf samstarfsins fengu ADHD samtökin ferðastyrk frá Iceland Express að andvirði 500.000 króna, þannig að í heildina hefur framlag Iceland Express og farþega félagsins til samtakanna numið 2.850.000 krónum.

Í tilkynningu vegna afhendingarinnar er afrakstur samnings sem gerður var í júlí 2006 um samstarf Iceland Express og ADHD samtakanna, sem eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest og ofvirkni og fjölskyldum þeirra. Samningurinn var þríþættur og fólst í skipulegri klinksöfnun meðal farþega um borð í vélum félagsins, sölu á lita- og þrautabókum fyrir börn um borð og ferðastyrkjum.

Klinksöfnun Iceland Express meðal farþega hófst í ágúst 2006. Stuðningur farþeganna verður nýttur til að útbúa greinargott fræðsluefni fyrir kennara um nám barna sem glíma við ADHD en samkvæmt könnunum eru ofvirk börn mesti streituvaldurinn í starfi grunnskólakennara. Einnig skipuleggja samtökin sérstök námskeið fyrir kennara um þetta efni.

„Styrkir sem þessir eru afar mikilvægir fyrir starfsemi ADHD samtakanna. Til eru aðferðir til að draga úr einkennum ADHD og auka lífsgæði barna með athyglisbrest og ofvirkni en fræðsla er nauðsynleg til að kenna árangursríkar leiðir t.d. við uppeldi og kennslu barna með ADHD. Stór þáttur í starfsemi okkar er einmitt að fræða bæði almenning og fagfólk innan menntakerfisins og víðar um ADHD til að skapa skilning fyrir þessum börnum og fjölskyldum þeirra. Þar nýtast bæði fjármunir og ferðastyrkir afar vel,“ segir Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD samtakanna.

„Ég vil nota tækifærið og þakka farþegum Iceland Express sem hafa lagt okkur lið við að aðstoða ADHD samtökin með þátttöku í klinksöfnuninni. Samtökin vinna mikið og gott starf sem hefur komið fjölmörgum íslenskum fjölskyldum til góða og því ánægjulegt að geta létt undir með starfsemi þeirra,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express.

ADHD er taugaþroskaröskun og eru helstu einkenni athyglisbrestur, hvatvísi og ofvirkni. Rannsóknir sýna að nálægt 5–10% barna og unglinga glíma við þessa röskun, sem hefur alvarleg áhrif á félagslega aðlögun, námsárangur og sjálfsmynd.