Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas áætlar nú að fjölga enn hraðar verslunum sínum á Indlandi.

Reuters fréttastofan greinir frá því á vef sínum að Adidas muni reyna að opna 450 verslanir á þessu ári en þegar var gert ráð fyrir að opna 325 verslanir á Indlandi.

„Það verða settar upp verslanir bæði litlum bæjum og stórum borgum,“ segir Andreas Gellner, framkvæmdastjóri Adidas á Indlandi.

Þá er greint frá því í frétt Reuters að smásöluverslun í Indlandi hafi aukist um 30% á fjórum árum og gerir Adidas ráð fyrir 30-35% söluaukningu á þessu ári þar í landi.