Í fyrsta skipti síðan mælingar hófust eru tvær íslenskar kvikmyndir sem tróna á toppnum sem stærstu kvikmyndir á árinu. Þetta eru kvikmyndirnar Ég man þig sem þénaði tæpar 76,6 milljónir króna með 47.368 gesti og Undir trénu sem þénaði 67,7 milljónir króna en á hana mættu 42.427 gestir.

Nýjasta Star Wars myndin, The Last Jedi, var svo í þriðja sæti með 67,5 milljónir króna í tekjur en sú kvikmynd er jafnframt sú eina þar sem aðsókn var yfir 50 þúsund manns á árinu en heildaraðsókn ársins að henni var 50.645 enda þótt kvikmyndin hafi einungis verið í sýningu frá 12. desember.

Heildartekjur allra kvikmynda í íslenskum kvikmyndahúsum á árinu námu 1.688.453.577 króna sem er á pari við tekjur kvikmyndahúsa árið 2016 sem námu þá 1.689.720.455 króna. Aðsókn dróst hins vegar saman um 3,4%. Var 1.371.820 árið 2017 en var 1.420.435 árið 2016. Hver Íslendingur fór því rúmlega fjórum sinnum í kvikmyndahús á árinu.

Á síðustu fjórum árum hafa íslenskar kvikmyndir trónað þrisvar á toppnum yfir tekjuhæstu kvikmyndir ársins, sem hlýtur að teljast einkar jákvætt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað. Að þessu sinni voru þrjár íslenskar myndir á lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndir ársins en kvikmyndin Hjartasteinn situr í 11. sæti með tæpar 34,5 milljónir króna í tekjur en yfir 22.000 manns sáu kvikmyndina í bíóhúsum.

Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildartekjum var 11,22% árið 2017 en var 6,6% á árinu 2016 svo þeirra íslensku var umtalsvert fyrirferðarmeira í kvikmyndahúsum en árið á undan. Samtals voru 17 íslenskar kvikmyndir/heimildarmyndir sýndar í kvikmyndahúsum á árinu en voru 15 árið á undan.

Vinsælasta íslenska heimildarmyndin á árinu var kvikmyndin um Reyni sterka sem rúmlega 2.200 manns sáu í kvikmyndahúsi og halaði hún inn rúmar 3,3 milljónir króna.

Hlutfall bandarískra mynda minnkar

Bandarískar kvikmyndir áttu 85% af markaðnum sé horft til tekna en 87% sé horft til aðsóknar. Þetta er ívið minna en árið á undan þegar bandarískar kvikmyndir voru með í kringum 90% af markaðinum, sem var óvenjuhátt hlutfall. Allar 20 stærstu myndirnar, að þeim þremur íslensku undanskildum, komu úr smiðju bandarísku kvikmyndastúdíóanna.

Síðasta ár var einkar gott fyrir Disney á Íslandi því þaðan komu myndirnar sem röðuðu sér í sæti þrjú til sex. Aðrar erlendar kvikmyndir en bandarískar voru því með 3,4% af markaðnum í tekjum á síðasta ári. Vinsælasta kvikmynd ársins vestur í Bandaríkjunum í tekjum talið var Star Wars: The Last Jedi.

Alls voru 172 kvikmyndir teknar til sýninga í kvikmyndahúsum á síðsta ári en voru 179 tvö ár þar á undan (2015 og 2016). Lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndirnar á árinu 2017 má sjá hér að neðan. Þess má geta að vinsældum mynda er ávallt raðað eftir tekjum en ekki aðsókn. Þetta er gert svo að hlutfall boðsmiða eða afsláttarmiða í umferð hafi ekki áhrif á vinsældir kvikmynda.