Valdimar Halldórsson
Valdimar Halldórsson
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, efnahags og viðskiptaráðherra.

Valdimar er með B.A. gráðu í hagfræði og M.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Hann starfaði áður hjá Hagstofu Íslands, Íslandsbanka/ Glitni og IFS Greiningu. Frá árinu 2011 starfaði Valdimar hjá Markó Partners við fjármála/ sjávarútvegstengd verkefni.