Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á kaup Advania á Tölvumiðlun, en fyrst var tilkynnt um kaupin um miðjan ágúst á þessu ári.

Í úrskurði samkeppniseftirlitsins segir að samruninn sé ólíklegur til að hafa skaðlega áhrif á samkeppni á þeim markaði sem fyrirtækin starfi á.“

„Þrátt fyrir að Advania sé öflugt á upplýsingamarkaði og bæti stöðu sína á þeim sviðum sem Tölvumiðlun hefur þróað lausnir gefa athuganir Samkeppniseftirlitsins ekki til kynna að framangreindur samruni muni hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif.

Í tilkynningunni segir einnig að sameiginleg markaðshlutdeild fyrirtækjanna sé ekki þannig að markaðsráðandi staða verði til.

„Sameiginleg markaðshlutdeild umræddra fyrirtækja á þeim markaði sem um ræðir bendir sem slík ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til. Þá ber að hafa í huga að litlar aðgangshindranir eru að viðkomandi markaði. Því til stuðnings má t.a.m. benda á að töluverðar breytingar hafa verið á upplýsingatæknimarkaði undanfarin ár og hlutdeild og staða fyrirtækja breyst hratt frá einu tímabili til annars, sér í lagi með örri tækniþróun.

Með vísan til alls þessa er það mat Samkeppniseftirlitsins að fyrir hendi sé töluvert samkeppnislegt aðhald á markaðnum.“

Mikil undirbúningsvinna við að skipuleggja sameiginlega starfsemi fyrirtækjanna

Í tilkynningu frá Advania um málið segir að Tölvumiðlun sé með elstu hugbúnaðarfyrirtækjum landsins, en fyrirtækið á 30 farsæl ár að baki. Félagið mun tilheyra að mestu launa- og mannauðslausnum eftir sameiningu.

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania segir að:„Við erum að vonum gríðarlega ánægð með þessa niðurstöðu. Frá því að gengið var frá kaupunum í sumar hafa stjórnendur Advania og eigendur Tölvumiðlunar unnið heilmikla undirbúningsvinnu við að skilgreina og skipuleggja hvernig samþætta eigi starfsemi fyrirtækjanna. Markmið Advania verður að bjóða íslensku atvinnulífi framúrskarandi og nútímalegar mannauðslausnir og sem fyrr munum við leggja mikla áherslu á þjónustu og ráðgjöf í þessum málum til okkar viðskiptavina“,

Úrskurð samkeppniseftirlitsins má sjá hér.