Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs og Vesa Suurmunne forstjóri Nordic Mezzanine Advisers Limited hafa gengið inn í stjórn Advania að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

Katrín Olga Jóhannesdóttir , er fædd 1962. Hún er formaður Viðskiptaráðs, situr í stjórn Icelandair Group og í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingafélags, er varaformaður Samráðsvettvangs um aukna hagsæld og situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík.

Katrín Olga sat áður í bankaráði Seðlabankans, í stjórn Ölgerðinnar, Já, IcePharma og fleiri fyrirtækja. Hún starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri hjá Símanum og Skiptum, móðurfélagi Símans. Katrín Olga er BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu frá Háskólanum í Óðinsvéum.

Vesa Suurmunne er fæddur 1955. Hann er forstjóri Nordic Mezzanine Advisers Limited. Hann hefur áður gegnt stjórnunarstörfum hjá Hambro European Ventures, Hambros Bank Limited, Arctos Asset Management og hjá The Industrialization Fund of Finland. Vesa er með meistaragráðu í tæknifræði frá Tækniháskólanum í Helsinki og BS gráðu í viðskiptafræði frá Helsinki School of Economics.

Stjórn Advania er því nú skipuð Thomas Ivarson, stjórnarformanni, Birgitta Stymne Göransson, Bengt Engström, Katrínu Olgu Jóhannesdóttur og Vesa Suurmunne.

Thomas Ivarson, stjórnarformaður segir að það sé gleðilegt að fá Katrínu Olgu og Vesa inn í stjórnina. „Þau búa að mikilli viðskipta- og stjórnarreynslu og hafa góða innsýn í mikilvægustu markaði Advania,“ segir Thomas.

„Þau koma með þekkingu og sérfræðikunnáttu inn í stjórnina sem styður við markmið félagsins um áframhaldandi vöxt, með því bjóða þjónustu og upplýsingatæknilausnir sem skapa verðmæti fyrir okkar viðskiptavini. Ég býð þau hjartanlega velkomin til Advania.”