Advania hefur keypt 94,2% hlutafjár í sænska upplýsingatæknifyrirtækinu Caperio og mun umfang reksturs Advania aukast verulega á næstunni að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Advania.

Heildarvelta Advania mun aukast um 50% og reksturs félagsins í Svíþjóð tvöfaldast. Heildartekjur Caperio á síðasta ári námu um 11,6 milljörðum íslenskra króna en alls starfa um 120 manns hjá fyrirtækinu. Kaupverðið er 158 milljónir sænskra króna eða sem nemur um 2 milljörðum íslenskra króna.

„Kaupferlið gekk vonum framar og það er virkilega ánægjulegt að svo stór hópur hluthafa hafi þegar samþykkt kauptilboðið“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. „Í þessum kaupum felast mikil og spennandi samlegðaráhrif og mun vöru- og þjónustuframboð okkar styrkjast til muna. Þetta er gríðarlega mikilvægur áfangi í vegferð okkar um að styrkja Advania í sessi sem eitt af leiðandi fyrirtækjum Norðurlanda á sviði upplýsingatækni.“

Caperio var stofnað árið 2000 en helsti styrkur fyrirtækisins liggur í sölu tölvubúnaðar og hugbúnaðarleyfa, auk þess sem fyrirtækið sinnir rekstri upplýsingatæknikerfa, skýjalausna og ráðgjafar í upplýsingatækni. Caperio er skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi en verður nú afskráð og sameinað rekstri Advania.