Advania hefur keypt breska upplýsingatæknifélagið Content+Cloud af ECI partners og öðrum hluthöfum, en um 800 manns starfa hjá félaginu. Með kaupunum er horft til þess að sérþekking C+C af skýjaþjónustum Microsoft efli Advania verulega og geri félaginu kleift að styðja viðskiptavinavini enn betur á stafrænni vegferð. Eru þetta fyrstu kaup Advania á félögum utan Norðurlanda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania.

Sjá einnig: Risa sala á Advania

Sameinað félag mun velta yfir 150 milljörðum íslenskra króna. Starfsfólk verður um 3500 með sérþekkingu á upplýsingatækni og þjónustu við viðskiptavini á Norðurlöndum og Bretlandi. Content+Cloud er stærsti sjálfstæði þjónustuaðili Microsoft í Bretlandi og einn öflugasti aðilinn á þessu sviði í Norður-Evrópu. Innan raða sameinaðs félags eru 10 einstaklingar sem valdir hafa verið af Microsoft sem Most Valuable Professional og búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á Microsoft-lausnum.

Sameinað félag stefnir á að verða eftirsóknarverðasti þjónustuaðili fyrirtækja í Norður-Evrópu í stafrænni vegferð og umbreytingu. Með kaupunum styrkist Advania og getur boðið enn sérhæfðari ráðgjöf um upplýsingatækni. Sameiningin er lyftistöng fyrir starfsfólk Advania sem hefur í breiðara þekkinganet að leita til að sérsníða þjónustu að hverjum viðskiptavini. Markmið félagsins er að skapa einstakt starfsumhverfi og verða besti vinnustaður fólks í upplýsingatækni. Áfram verður unnið að því að veita framúrskarandi þjónustu á forsendum viðskiptavina í dreifstýrðu skipulagi. Mikael Noaksson gegnir áfram starfi forstjóra Advania-samsteypunnar.

Sjá einnig: Þremur árum á undan áætlun

Goldman Sachs Bank Europe SE, Sweden Bankfilial og Stephens Europe Limited veittu Advania ráðgjöf við kaupin. Arma Partners voru ráðgjafar Content+Cloud. Goldman Sachs Asset Management-sjóðurinn er áfram meirihlutaeigandi Advania-samsteypunnar. Búist er við að viðskiptin verði frágengin fyrir áramót.