Advania hefur undirritað samning við sænsku tryggingastofnunina um innleiðingu á nýju upplýsingakerfi. Samningurinn er til þriggja ára og heildarverðmæti hans er áætlað um 2,3 milljarðar íslenskra króna eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Advania.

Þar kemur fram að lausnin verður innleidd af Advania í Svíþjóð og nýtt af rúmlega 1.000 starfsmönnum þjónustuvers sænsku tryggingastofnunarinnar. Um er að ræða heildarlausn fyrir öll samskipti þjónustuvers við viðskiptavini stofnunarinnar, hvort heldur gegnum síma, tölvupóst, netspjall eða samfélagsmiðla. Lausnin mun leysa af hólmi eldri þjónustuverslausn frá sænska fjarskiptarisanum Telia.

„Samningurinn felur í sér mikla viðurkenningu á sérþekkingu Advania á sviði stafrænna símalausna sem samþættar eru öðrum upplýsingakerfum,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, í tilkynningunni.

„Okkar lausn er með IP-högun og kemur frá samstarfsaðilanum Interactive Intelligence, sem er leiðandi á heimsvísu í samþættum samskiptalausnum. Önnur nýbreytni í þessum samningi er að þjónustan verður veitt sem áskriftarþjónusta með föstum mánaðargreiðslum.“