Ole Morten Settevik hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Advania í Noregi. Ole Morten er hagfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla og hefur viðamikla reynslu úr norsku atvinnulífi.

Fram kemur í tilkynningu frá Advania, að undanfarin ár hafi Ole Morten starfað sem forstjóri norska hugbúnaðarfyrirtækisins Bluegarden, sem sérhæfir sig á sviði mannauðslausna. Hann gegndi áður meðal annars stjórnunarstöðum hjá IBM og IDC í Noregi og var um árabil forstjóri Microsoft í Noregi. Ole Morten hefur enn fremur setið í stjórn Advania í Noregi undanfarin misseri. Samhliða þessum verkefnum hefur hann í liðlega tvo áratugi sinnt stjórnarstörfum hjá fjölmörgum fyrirtækjum í norskum þekkingariðnaði.

„Ég þekki vel til Advania og starfsemi fyrirtækisins í Noregi. Það er spennandi áskorun að vera hluti af öflugu stjórnendateymi í sóknarhug, sem byggir nú upp eitt af tíu stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum Norðurlanda. Það er þess vegna sannkallað tilhlökkunarefni að taka við stjórnartaumunum í Noregi,“ er haft eftir Ole Morten í tilkynningunni.

Hjá Advania í Noregi starfa í dag um 170 manns, en hjá samstæðunni starfa á heildina tæplega 1.100 manns og þar af tæplega 600 á Íslandi, 300 í Svíþjóð og 20 í Lettlandi.