Advania hefur heimild til að nota nafnið og vörumerkið Advania samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Hæstiréttur staðfestir þá dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem komst að þeirri niðurstöðu að notkun á nafni Advania kæmi ekki niður á Advance.

Advance stefndi Advania fyrir notkun á nafninu og fyrir það hversu líkt nafnið væri Advance. Það kæmi niður á rekstri og viðskiptavild Advance.

Advance þarf að greiða Advania allan málskostnað sem nemur hálfri milljón króna.