Microsoft Ísland hefur veitt Advania viðurkenninguna samstarfsaðili ársins á sviði Microsoft Business Solutions (MBS). Við afhendingu verðlaunanna var tekið fram að Advania hefði náð framúrskarandi árangri með viðskiptavinum fyrirtækisins þegar kemur að notkun Microsoft lausna á borð við Dynamics AX, NAV og TOK. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Haft er eftir Heimi Fannari Gunnlaugssyni, framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi, að Advania hafi náð að straumlínulaga vöruframboð sitt og náð eftirtektarverðum árangri með Microsoft viðskiptalausnir.

Kristinn Eiríksson, framkvæmdastjóri Viðskiptalausna hjá Advania segist gífurlega stoltur af þessari viðurkenningu og tekur fram að hún sé vitnisburður um metnaðinn sem knýr starfsfólk þeirra áfram.