Ægir Birgisson, sem var forstöðumaður markaðsviðskipta VBS fjárfestingabanka á árunum 2007 til 2010, hefur gengið til liðs við Arctica Finance. Mun Ægir starfa í markaðsviðskiptum hjá verðbréfafyrirtækinu. Fréttablaðið greinir frá þessu .

Ægir var meðal annars verðbréfamiðlari Straums fjárfestingabanka og Íslandsbanka frá 2001 til 2007 en síðustu ár hefur hann sinnt eigin fjárfestingum.

Arctica Finance hagnaðist um 212 milljónir króna í fyrra samanborið við 500 milljóna króna hagnað árið á undan.