Æskuheimili bítilsins Johns Lennon verður boðið upp síðar í þessum mánuði, segir vefur tímaritsins Forbes. Lennon bjó á NewCastle Road í Wavertree í Liverpool hluta úr æskunni.

Reyndar flutti Lennon mörgum sinnum í bernsku, eftir að foreldrar hans skildu. Hann fékk ekki varanlegt heimili fyrr en hann fluttist til frænku sinnar í Mendips í Liverpool. Eftir það bjó móðir hans í húsinu á NewCastle Road og hann heimsótti hana oft þangað.

Húsið þykir fallegt. Þar eru þrjú baðherbergi og tvær setustofur. Tiltölulega litlar breytingar virðast hafa veirð gerðar á húsinu frá því að Lennon bjó þar.