Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur samið við íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Endor um kaup á diskastæðu og hýsingu á öllu íslensku efni á internetinu.

Samningurinn er tvíþættur, annars vegar kaupir Landsbókasafn diskastæðu og hýsingu hjá Endor þar sem íslenska internetið er vistað, og hins vegar hýsir safnið afrit af þeim gögnum í EC Storage lausn Endor.

EC Storage er gagnageymsluský sem byggir á sömu tækni (object storage) og alþjóðleg stórfyrirtæki notast við, til dæmis má þar nefna Facebook, Google og Spotify.

Íslenska internetið er hýst í þremur öflugum gagnaverum sem staðsett eru á mismunandi stöðum um landið, og eru gagnaverin tengd saman með háhraða 10 Gb/s tengingum til að tryggja að gögn séu sífellt að færast á milli staða. Það skilar hámarksuppitíma og öryggi að því er segir í fréttatilkynningu um málið.

Varðveiga gögn sem fara í skylduskil

Edda G. Björgvinsdóttir, fjármálastjóri og sviðsstjóri rekstrar hjá Landsbókasafni Íslands segir safnið gegna mikilvægu varðveisluhlutverki.„[Það] varðveitir gögn fyrir Íslendinga samkvæmt lögum um skylduskil,“ segir Edda.

„Landsbókasafn safnar til dæmis afritum af öllu íslensku vefefni, vefsafn.is, og útbýr stafræn afrit af útgefnum tímaritum, timarit.is,  svo eitthvað sé nefnt. Við leggjum mikla áherslu á öryggi okkar gagna og Endor gerir okkur kleift að hámarka öryggi, hagkvæmni og skilvirkni í okkar rekstri.“

Davíð Þór Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Endor segir: „Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að afrita og halda utan um íslenska internetið og við hjá Endor erum mjög ánægð og spennt fyrir þessu mikilvæga samstarfi við Landsbókasafnið.“

Endor er ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni og nýtir til þess nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu, ásamt því að vinna með virtum samstarfsaðilum