Blaðamannafundur verður haldinn í Ármúla, þar sem áður var Broadway, klukkan þrjú í dag þar sem áform um uppbyggingu á einum stærsta heilsukjarna höfuðborgarsvæðisins verða kynnt en um er að ræða fjárfestingu sem nemur yfir 2 milljörðum króna.

Á fundinum verða Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður EVA consortium ehf. og heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson.