Í dag er Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn í fjórtánda sinn víða um heim fyrir tilstuðlan Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í tilefni dagsins bjóða íslenskir kúabændur með aðstoð frá Mjólkursamsölunni öllum 70 þúsund leikskóla- og grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum. Reiknað er með að drukknir verði alls sextán þúsund lítrar af mjólk

Markmiðið með Alþjóðlega skólamjólkurdeginum er að vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna.  Á Skólamjólkurdaginn er einnig árlegri teiknisamkeppni hleypt af stokkunum þar sem öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í samkeppninni. Í tilkynningu frá Landssambandi kúabænda segir að myndefnið sé algjörlega frjálst en æskilegt sé að það tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk.