Í ljósi þess að nýjar reglur hafa verið settar um merkingar á umbúðum áfengis mun Ölgerðin einnig á næstu mánuðum endurskoða hönnun umbúða sinna á bjór þannig að skýrari línur verði á milli áfengrar vöru og óáfengrar enda sé það hagur neytenda að ekki fari milli mála um hvort sé að ræða. ÁTVR og Ölgerðin hafa í kjölfar þessarar niðurstöðu komist að samkomulagi um að bjórinn Páskagull verði tekinn til sölu í Vínbúðunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vínbúðinni.

Í kjölfar þess að ÁTVR hafnaði því að bjórinn Páskagull yrði seldur í Vínbúðunum leitaði Ölgerðin Egill Skallagrímsson álits hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Heilbrigðiseftirlitið tók undir athugasemdir ÁTVR um að breyta þurfi merkingunum til samræmis við ákvæði gildandi laga og reglugerða um matvæli. Enn fremur var lagt til að hæfilegur frestur til úrbóta sé við næstu prentun umbúða.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur ákveðið að viðeigandi lagfæringar verði gerðar við næstu prentun umbúðanna.