Með því að fara í sameiginleg innkaup áætlar Fjármálaráðuneytið að ríkið geti sparað allt að 2-4 milljarða króna á ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu eftir að fyrsta sameiginlega útboði stofnana ríkisins lauk í vikunni.

Í tilkynningunni segir að niðurstaða fyrsta sameiginlega útboðsins á tölvum liggur nú fyrir og er veittur afsláttur um 50% miðað við listaverð seljenda og innkaupsverð 27% lægra en besta verð sem ríkinu hefur áður boðist. Í tilviki sumra stofnana er enn meiri en framangreindar tölur gefa til kynna þar sem þær njóta nú magnafsláttar vegna sameiginlegra innkaupa en áttu ekki kost á slíkum afslætti áður. Sameiginlegt útboð á ljósritunarpappír fyrir 14 stofnanir fór einnig fram fyrir skömmu. Niðurstaða þess útboðs var 55% afsláttur miðað við listaverð seljenda.

Átta stofnanir tóku þátt í örútboðinu: Ríkisskattstjóri, Fjársýsla ríkisins, Tollstjóri, Rekstrarfélag stjórnarráðsins, f.h. ráðuneyta, Seðlabanki Íslands, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Ríkiskaup.

Umfang innkaupa ríkisins er um 140 milljarðar króna á ári en þar af kaupir ríkið vörur og þjónustu fyrir um 88 milljarða króna á ári. Með hagkvæmum innkaupum er ætlað að spara megi allt að 2-4 milljarða króna á ári.