Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata á Alþingi og einn þriggja þingmanna flokksins, ætla að hætta á þingi eftir kjörtímabilið. Hún hefur setið a Alþingi síðan árið 2009 þegar hún var kjörin á þing fyrir Borgarahreyfinguna.

Birgitta var gestur í þætti Mikaels Torfasonar, Mín skoðun á Stöð 2 í gær, og gaf þar í skyn að hún ætli ekki aftur fram.

Það sagði hún orðrétt:

„Ég er á mínu síðasta kjörtímabili.“