Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
© BIG (VB MYND/BIG)
Landsbankinn ætlar að selja fullnustueignir eins fljótt og unnt er í opnu og gagnsæju söluferli, samkvæmt nýrri stefnu bankans um sölu og ráðstöfun fullnustueigna. Í tilkynningu frá bankanum segir að stefnan sé hluti af innleiðingu sjónarmiðs samfélagslegrar ábyrgðar í rekstri Landsbankans.

„Meginmarkmið stefnunnar er að Landsbankinn ætlar að fylgja góðum viðskiptaháttum og selja fullnustueignir eins fljótt og unnt er í opnu og gagnsæju söluferli. Landsbankinn fylgir skilgreindu söluferli til að tryggja hagsmuni viðskiptavina við sölu á fullnustueignum,“ segir í tilkynningu.

„Í stefnunni segir jafnframt að allar fullnustueignir skulu auglýstar og boðnar til sölu á almennum markaði, brjóti það ekki gegn lögvörðum hagsmunum viðskiptavina bankans. Fullnustueignir eru verðmetnar af viðurkenndum sérfræðingum.  Minni fasteignir, ökutæki og lausafjármunir eru boðnar til sölu eins fljótt og unnt er. Óskráð verðbréf, s.s. hlutabréf í fyrirtækjum eru seld í opnu söluferli á almennum markaði ef það eru ekki viðskiptalegir annmarkar þar á. Áætlun um sölu stærri fasteigna og fyrirtækja í samkeppnisrekstri liggur fyrir opinberlega innan sex mánaða frá því að bankinn öðlast umráðarétt yfir eigninni.

Við gerð stefnunnar er tekið mið af grunnreglum samfélagslegrar ábyrgðar eins og þeim er lýst í leiðbeiningum alþjóða staðlaráðsins (ISO 26000), viðmiðum Global Compact verkefnis Sameinuðu þjóðanna og reglum Samkeppniseftirlitsins.“