„Í ævintýrum Harrý Potter er einn sem ekki má nefna á nafn. Í Hogwarts-skóla má ekki segja Lord Voldemort, þó svo að allt snúist um hann þegar upp er staðið. Það er ekki frá því að þessi samlíking komi upp í hugann, þegar umræða um matarskatt á sér stað á Alþingi Íslendinga þessa dagana.“

Með þessum orðum hefst grein Finns Árnasonar, forstjóra Haga, sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag. Í greininni segir hann að á Alþingi tali allir um mikilvægi þess að matvöruverð sé lágt og að það verði að gera hvað sem er til þess að koma í veg fyrir hækkun á matvöruverði, en það tali enginn þingmaður um Lord Voldemort.

Finnur bendir á í greininni að tveir meginþættir ráði því að matvöruverð á Íslandi sé eins og það er. Annars vegar sé það bein skattlagning á vöruna og sama varan geti verið skattlögð í mörgum þrepum; með magntolli, verðtolli, vörugjaldi, umbúðagjaldi og svo virðisaukaskatti. Hins vegar séu dulin álög á heimili hluti af vöruverði, þar sem verndartollar og viðskiptahöft valdi því að verð á ákveðnum vörum sé hærra en það annars gæti verið.

Öll skattlagningin fer í sama sjóðinn

Hann segir að öll þessi skattlagning fari í sama sjóðinn, ríkissjóð. Því sé með öllu óskiljanlegt að það þurfi mörg þrep skattlagninar til þess eins að koma hluta af verðmæti einnar vöru í ríkissjóð. Segir hann innfluttan rjómaís t.a.m. skattlagðan í öllum fimm framangreindum þrepum og virðisaukaskattur sé líklega aðeins um 15% af heildarskattlagningu þeirrar vöru.

„Nú er rætt um breytingu á síðasta skattþrepinu, virðisaukaskatti úr 7% í 11%. Vörugjöld falla niður og einfalda þar með innheimtu skatt af sömu vörunni. Því ber að fagna. En betur má ef duga skal. Af hverju nefnir enginn þingmaður lækkun tolla í umræðu um verðlag á matvöru? Aukið viðskiptafrelsi er augljós leið til þess að bæta hag íslenskra heimila og auka kaupmátt þeirra. Hvað tefur?“ segir Finnur að lokum.