Sól í Straumi heldur fund með fulltrúum Alcan í kvöld kl. 20.00 um stækkunarmálið í Straumsvík.

Gestir fundarins eru Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi og Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá Alcan.

Kynntar verða áætlanir Alcan um stækkun og munu bæjarbúar fá tækifæri til þess að spyrja gestina spurninga og taka þátt í umræðum um málið.

Fundartími: 6. desember 2006 kl. 20:00. Fundarstaður: Haukahúsið á Völlum. Fundarstjóri er Ásgrímur Sverrisson.