Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 1,11% í tæplega 32 milljóna króna viðskiptum á annars rólegum degi í Kauphöllinni í dag.

Gengi aðeins tveggja félaga hækkaði í verði. Hitt var gengi bréfa Icelandair Group, sem hækkaði um 0,57% í afar litlum viðskiptum.

Önnur hreyfing var ekki á hlutabréfamarkaði.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,13% og endaði hún í 994,73 stigum. Viðskipti á hlutabréfamarkaði námu aðeins 43 milljónum króna.