Sala áfengis í október var 15,3% minni í lítrum talið en í október árið 2008.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar en þar segir að meginástæðu fyrir þessum  mikla mun megi rekja til þess að 31. október  í fyrra kom mikill fjöldi viðskiptavina í Vínbúðirnar í kjölfar frétta í fjölmiðlum um yfirvofandi hækkun á áfengisgjaldi.

„Þann dag komu tæplega 44 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar en á hefðbundnum föstudegi koma að meðaltali um 29 þús. viðskiptavinir,“ segir á vef Vínbúðarinnar.

Fram kemur að sala áfengis í lítrum tímabilið janúar til október dróst saman um 1,6%.  Það sem af er árinu hefur sala á rauðvíni dregist saman um 16,6%, blönduðum drykkjum um 37% og ókrydduðu brennivíni og vodka um 10,5%.  Sala á hvítvíni jókst hins vegar á milli ára um 3,4% og sala lagerbjórs jókst um 0,1%.