Afgangur af vöruskiptum nam 104,5 milljörðum króna í fyrra. Þetta er 15,4 milljarða króna samdráttur á milli ára, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar.

Samkvæmt tölunum voru vörur fluttar út fyrir 626,4 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarða. Þar af nam verðmæti útflutnings í desember 60,4 milljörðum króna en innflutnings 53,4 milljörðum króna. Vöruskipti voru því hagstæð um 6,9 milljarða króna í mánuðinum.