Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um 7,6 milljarða króna í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar.

Gangi það eftir nam verðmæti útflutnings 53,2 milljörðum króna í mánuðinum en verðmæti innflutnings 45,7 milljörðum króna.

Afgangur af vöruskiptum nam rúmum 89,5 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins. Hann fer í rúma 97,6 milljarða standi bráðabirgðatölurnar.