Vöruskipti voru hagstæð um 10,1 milljarð króna í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Í fyrra nam afgangur af vöruskiptum 8,1 milljarði krónaá sama gengi  í mánuðinum. Vöruskipti hafa verið jákvæð ellefu sinnum síðastliðin 20 ár. Alla jafna hafa þau verið jákvæð í kringum 1 til 2 milljarða króna ef undantekningatilvik eru undanskilin. Afgangur af vöruskiptum hefur ekki verið jafn mikill á tímabilinu og nú í síðasta mánuði.

Vörur voru fluttar út fyrir 47,3 milljarða króna í mánuðinum en út fyrir 37,2 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings jókst um 7,6% á milli ára en verðmæti innflutnings um 3,7%.