Vöruskipti voru hagstæð um fjóra milljarða króna í febrúar, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Þetta er 2,1 milljarði króna minna en í febrúar í fyrra. Miðað við þetta voru vöruskipti hagstæð um samtals 11,2 milljarða króna á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs. Það er 6,2 milljörðum krónum minna en á fyrstu tveimur mánuðum síðasta árs.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að vöruútflutningur í febrúar nam 41,3 milljörðum króna og innflutningi 37,3 milljörðum króna. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins nam verðmæti útflutningsins 89,3 milljörðum króna en innflutnings 78,2 milljörðum króna.