Meirihluti landsmanna, eða 70,0%, vill að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugstoðum ehf. en í september og byrjun október vann Capacent Gallup skoðanakönnun fyrir Flugstoðir ohf.

Í tilkynningunni kemur fram að työluvert fleiri telja nú að völlurinn eigi að vera áfram á sínum stað en þegar Capacent kannaði viðhorf fólks til vallarins í maí 2005. Þá töldu 55,0% svarenda að völlurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýrinni.

Fylgi við núverandi staðsetningu Reykjavíkurflugvallar hefur því aukist um 15 prósentustig á rúmlega þremur árum, samkvæmt tilkynningu Flugstoða.

„Sérstaka athygli vekur að meirihluti Reykvíkinga er nú þeirrar skoðunar að flugvöllurinn eigi að vera áfram á sínum stað eða 64%,“ segir í tilkynningunni.

„Fylgi Reykvíkinga við núverandi staðsetningu flugvallarins hefur aukist um 18 prósentustig síðan í maí 2005. Að mati 68% íbúa nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur á ekki að færa flugvöllinn og 78% íbúa annarra sveitarfélaga landsins eru sömu skoðunar.“

Þá kemur fram að samkvæmt könnuninni telur helmingur kjósenda Samfylkingar rétt að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram þar sem hann er.

Mun meira fylgi er við núverandi staðsetningu flugvallarins hjá kjósendum annarra flokka. Þannig telja 92% kjósenda Framsóknarflokksins að völlurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni, 75% kjósenda Sjálfstæðisflokks og 71% kjósenda Vinstri grænna.

Könnunin var gerð 25. september til 5. október síðastliðinn. Um var að ræða netkönnun þar sem úrtakið var 1200 manns af landinu öllu á aldrinum 18 til 75 ára sem voru valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.

Svarhlutfall var 67,5%.

Í tilkynningu Flugstoða kemur fram að um hálf milljón farþega fóru um Reykjavíkurflugvöll á síðasta ári og fjölgaði þeim um rúmlega 12% frá árinu áður. Alls vinna um 600 manns við margvísleg störf tengd flugi á Reykjavíkurflugvelli.