Afgreiðsla Sundahafnar og Vöruhótels Eimskips verða lokuð í dag vegna veðurs og verður ekki opnað aftur fyrr en útséð er með veðurspá seinna í dag. Þá má búast við röskun á áætlanaferðum Eimskips Flytjanda víðsvegar um landið.

Fram kemur í tilkynningu frá Eimskipi að viðskiptavinir fyrirtækisins eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum.