Núverandi og fyrrverandi útgerðarmenn í Vestmannaeyjum, í samvinnu við kvenfélagið Líkn, afhentu Sjúkrahúsi Vestmannaeyja nýlega sjúkrarúm og tæki að andvirði 38 milljóna króna.

Athafnamaðurinn Bjarni Sighvatsson hafði veg og vanda að gjöfinni, en auk þess kom kvenfélagið Líkn að gjöfinni, en félagskonur hafa gefið sjúkrahúsinu tæki á hverju ári.

Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins, sagði gjafirnar koma sér vel, en árlega fengi sjúkrahúsið um tvær milljónir til tækjakaupa.