Hagnaður netverslunarrisans Amazon nam 197 milljónum dollara á öðrum ársfjórðungi og dróst saman um 77% frá sama tímabili í fyrra. Hér verður þó að taka tillit til þess að Amazon hefur í gegn um tíðina lagt litla áherslu á hagnað og hefur í stað þess endurfjárfest í rekstrinum.

Þrátt fyrir það var afkoman langt undir væntingum greiningaraðila sem höfðu gert ráð fyrir 863,5 milljón dollara hagnaði á tímabilinu samkvæmt frétt Bloomberg .

Tekjur tímabilsins námu 38 milljörðum dollara og jukust um 25% samanborið við árið í fyrra. Á sama tíma jókst kostnaður um 28% milli ára og nam 37,3 milljörðum dollara á tímabilinu og jókst kostnaður því hraðar en tekjur.

Hlutabréfaverð Amazon hefur lækkað um 3,05% á eftirmarkaði frá því að milliuppgjörið var birt en gengi bréfa félagsins hefur hækkað um tæp 40% það sem af er ári. Varð lækkunin til þess að Bill Gates er aftur orðinn ríkasti maður heims eftir að Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon fór fram úr honum í skamman tíma í gær.