Hagnaður Icelandair Group [ ICEAIR ] á þriðja fjórðungi ársins var tæpur 2,1 milljarður króna, sem er 28% undir meðalspá greiningardeilda bankanna og 18% undir hagnaði sama tímabils í fyrra. Tekjur námu 20 milljörðum króna og voru 6% undir spám en 3% meiri en í fyrra.

Tilkynning vegna uppgjörs Icelandair Group var birt nú í kvöld og þar er meðal annars haft eftir Jóni Karli Ólafssyni forstjóra félagsins að hagnaðurinn á þriðja fjórðungi hafi verið undir væntingum, en að EBITDA hagnaður ársins 2007 verði einn hinn besti í sögu félagsins, eða um 5,6 milljarðar króna. EBITDA hagnaðurinn í fyrra, þ.e. hagnaður fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir, var 5,7 milljarðar króna.

Í tilkynningunni er ennfremur haft eftir Jóni Karli að ljóst sé að markmið um betri afkomu en á síðasta ári náist ekki, en það hafi verið besta ár í sögu félagsins frá upphafi. Helstu ástæður séu að farþegatekjur af auknu framboði í áætlunarflugi dótturfélagsins Icelandair séu undir áætlun, m.a. vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar og aukins þrýstings á meðalfargjöld. Sterk staða krónunnar hafi einnig áhrif á útflutning frá landinu og það hafi haft áhrif á fraktflutninga og verkefnastaða í fraktleiguflugi hafi um tíma verið lakari en gert hafi verið ráð fyrir.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá félaginu. Icelandair Group er með kaupunum á Travel Service og Latcharter, tveimur mið-evrópskum flugfélögum í örum vexti, að styrkja undirstöður félagsins og víkka út starfsemina. Þessi tvö fyrirtæki skila góðri afkomu, verða með um 23 flugvélar í rekstri á næsta ári og velta um fjórðungi af heildarveltu samstæðunnar, eða 23-25 milljörðum króna. Travel Service varð hluti af rekstri Icelandair Group frá 1. október,“ er haft eftir Jóni Karli Ólafssyni í tilkynningunni.