Afkoma Íslandsbanka var jákvæð um 3.586 milljónir króna eftir skatta, á fyrsta ársfjórðungs 2011 samkvæmt óendurskoðuðum árshlutareikningi. Hreinar vaxtatekjur námu 8.061 milljónum króna samanborið við 9.149 milljónum króna fyrir sama tímabil árið 2010.

Lækkun vaxta kemur m.a. til vegna lækkunar vaxtatekna af eigin fé og lækkunar vaxtamargínu af innlánum. Nettó gjaldfærsla vegna  endurmats lánasafnsins  nam  664 milljónum króna samanborið við 1.176 milljónir króna fyrir sama tímabil árið 2010. Kostnaðarhlutfall tímabilsins var 52,9% samanborið við 40,4% á sama tímabili árið áður.

Þá var eigið fé 124 milljarðar króna í lok mars samanborið við 121 milljarðar króna í lok árs 2010. Eiginfjárhlutfall bankans var 27,4% sem er töluvert hærra en það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið hefur sett bankanum. Arðsemi eiginfjár var 11,7%. Heildarútlán til viðskiptavina og fjármálafyrirtækja námu um 529 milljörðum króna, en innlán námu um 410 milljörðum króna. Heildarútlán í lok árs 2010 námu 546 milljörðum króna og innlán 423 milljörðum króna. Hlutfall innlána af útlánum var 77,4% í lok tímabils samanborið við 77,5% í árslok 2010.