Tap Norðuráls Grundartanga árið 2020 nam 8,8 milljónum dollara, um 1,1 milljarði króna, samanborið við 32 milljóna dollara, tap árið á undan.

Heimsfaraldurinn og efnahagsþrengingar ársins 2020 settu strik í reikninga fyrirtækisins og drógust tekjur fyrirtækisins saman i, tæpar 60 milljónir dollara á milli ára. Tekjur Norðuráls í fyrra námu um 570,8 milljónum dollurum miðað við 628,3 milljónir árið áður.

Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á heimsmarkaðsverð á áli, líkt og á mörgum öðrum hrávörum. Meðalverð á áli var 1.702 dalir á tonn í fyrra, samanborið við 1.792 dali árið 2019. Þetta hafði óneitanlega áhrif á afkomu fyrirtækisins, en þrátt fyrir það nam EBITDA ársins 2020 7,6 milljörðum króna, samanborið við 118 milljónir árið 2019. Eiginfjárhlutfall var 63% í lok árs 2020.

„Árið 2020 var ár áskorana sem enginn vissi fyrir fram hvernig væri best að takast á við. Álverð sveiflaðist mikið og var meðalverðið töluvert undir verði ársins 2019. Þrátt fyrir þetta hækkaði EBITDA hagnaður umtalsvert frá fyrra ári. Árvekni og dugnaður starfsfólks á tímum Covid-19 skipti þar sköpum, en einnig aukin eftirspurn eftir virðisaukandi framleiðslu.

Í fyrra gengum við frá fyrsta stóra samningnum um sölu á Natur-Al áli, sem hefur mun minna kolefnisfótspor en venjulegt ál. Við bindum vonir við að vörur eins og Natur-Al muni ýta undir sérstöðu okkar á markaði og auka framlegð til lengri tíma," segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, í tilkynningu.