Afkoma Nýherja á fyrri helmingi ársins var undir væntingum.  Heildarhagnaður á fyrri árshelmingi nam 90 milljónum króna. Í tilkynningu félagsins kemur fram að verulegur samdráttur í verkefnum í hugbúnaðarþróun og ráðgjöf á Íslandi. Rekstur erlendra dótturfélaga var hins vegar að mestu samkvæmt áætlun „Afkoma Nýherja hf. er undir væntingum á fyrri árshelmingi ársins 2009 og samdráttur í eftirspurn á Íslandi meiri en áætlað var. Einkum hefur sala í hugbúnaðarþróun og ráðgjöf dregist verulega saman. Hins vegar er sala í ákveðnum vöruflokkum umfram áætlanir, svo sem í tæknibúnaði á neytendamarkaði og rekstrarvöru," er haft eftir Þórði Sverrissyni forstjóra félagsins í tilkynningu. Haft er eftir Þórði að rekstur erlendra dótturfélaga Nýherja hf. sé að mestu samkvæmt áætlun. Þrátt fyrir almennan samdrátt í Danmörku og Svíþjóð er verkefnastaða Applicon félaganna þar ágæt og hafa þau endursamið við nokkra af sínum helstu viðskiptavinum auk þess að hafa aflað nýrra verkefna. Starfsemi félaganna er mikilvæg fyrir afkomu Nýherja hf. vegna efnahagsástands og gengisþróunar á Íslandi því tekjur þeirra eru um þriðjungur af heildartekjum samstæðunnar og vega því þyngra en oft áður. Sala dregst saman um 3% milli ára

Sala á vöru og þjónustu nam 7.037 milljónum króna fyrstu 6 mánuði ársins 2009, samanborið við 7.255 milljónir krónar á sama tímabili árið áður. Sala hefur því dregist saman um 3% á milli ára. Tekjur starfseminnar á Íslandi námu 4.775 milljónum króna en 2.262 milljónum hjá erlendum dótturfélögum.