Reykjanesbær hefur lagt fram í bæjarráði óendurskoðaðan árshlutareikning bæjarins fyrir fyrr helming ársins 2014.

Hjá samstæðu Reykjanesbæjar, A og B hluta, er rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði jákvæð um 542 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 530 mkr. Rekstrarniðurstaða eftir fjármagnsliði er neikvæð um 1.131 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 958 mkr. Helsta frávik frá áætlun er sölutap hlutabréfa.

Eignir samstæðu eru bókfærðar á 48.368 mkr, þar af eru veltufjármunir 4.412 mkr. Skuldir samstæðu með lífeyrisskuldbindingum og leiguskuldbindingum eru 40.630 mkr, þar af eru skammtímaskuldir 3.775 mkr. Eigið fé nam 7.738 mkr.

Hreint veltufé samstæðu frá rekstri er um 549 mkr. Handbært fé samstæðu frá rekstri er um 555 mkr.

Rekstur Reykjanesbæjar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem er fjármögnuð að hluta eða öllu leyti með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð sem inniheldur rekstur fagsviða, Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu bæjarins, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:Fasteignir Reykjanesbæjar, Fráveita, Framkvæmdasjóður aldraðra, HS Veitur hf, Reykjaneshöfn, Tjarnargata 12 og Víkingaheimar.