Afkoma stærstu sveitarfélaga landsins virðist nú fara versnandi. Uppgjör síðasta árs og nýlegar tölur um afkomu þriggja stærstu sveitarfélaga landsins ber þess glöggt vitni. Í þessum uppgjörum kom versnandi afkoma skýrt í ljós, gjöld uxu umfram tekjur og rekstrarniðurstaða var lakari en á sama tímabili í fyrra og jafnvel lakari en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýjum markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.

Þar segir að gjöld hafi aukist umfram tekjur hjá Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ og Kópavogsbæ og þar vegi hærra launakostnaður þyngst. Í tilviki Kópavogsbæjar hafi launakostnaður til dæmis aukist um rúm 14% á fyrri hluta ársins samanborið við sama tímabil 2014 á meðan tekjur sveitarfélagsins hafi aukist um 5%. Laun og launatengd gjöld séu um helmingur af heildarrekstrarkostnaði sveitarfélaga á Íslandi.

Segir greiningardeildin að versnandi afkoma komi alls ekki á óvart og sé í raun framhald af þróun síðastliðins árs þar sem veruleg sveifla hafi verið til hins verra í afkomu íslenskra sveitarfélaga eftir mikinn rekstrarbata árin þar á undan.

Hægt er að lesa markaðspunktana í heild sinni hér.