Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 8,2 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Þetta er verri afkomna en í fyrra þegar niðurstaðan var neikvæð um 6,7 milljarða, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu á fjórðungsins eða 4,5% af tekjum hins opinbera.

Fram kemur í upplýsingum Hagstofunnar að heildartekjur hins opinbera jukust um 3,1% milli ársfjórðunga. Tekjuhækkunin skýrist fyrst og fremst af auknum tekjusköttum og vöru- og þjónustusköttum. Á sama tíma jukust heildarútgjöld hins opinbera um 3,8%. Útgjaldahækkunin skýrist aðallega af meiri launa- og vaxtakostnaði.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.958 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs í ár sem svarar til 107,2% af áætlaðri landsframleiðslu. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 848 milljarða króna í lok ársfjórðungsins en það samsvarar 46,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 43,7% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi í fyrra.